Mjórra | Breiðara
23. mars 2010 kl. 21:36 Guðmundur Böðvar Guðjónsson skrifaði.

Það er komið að því. Það var verið að hringja og vinsamlegast biðja okkur um að koma aftur norður og snýta þessari blessuðu Söngkeppni Framhaldsskólanna, aftur. Ýmis fríðindi fylgja því að fara með rútunni, svo sem tilboð á Greifanum um leið og við lendum á Akureyri. Gist verður í einhverjum skólanum þarna fyrir norðan en það er ekki komið á hreint ennþá sem og að verðið inn á hátíðina sjálfa er ekki enn komið en við upplýsum ykkur um það eins fljótt og við getum.

Stefnan fyrir þetta ár er að vinna keppnina, aftur og gera þetta að skemmtilegustu hópferð ever.

Við munum informa ykkur um verð og þess háttar von bráðar.

Ballið eftir keppni verður ekki af verri endanum, listamanna hóparnir sem koma fram eru:

- Dikta
- Bloodgroup
- Bermúda
- Sykur
- Atli & Erpur

... ekki dónalegt þetta:D

Komdu með í roadtrip ársins og skráðu þig:D

| Meira


Vefnefnd NFFA - Tómas Árnason 2009