Ekki gleyma að kjósa Mörthu og Berg á laugardaginn og styðja við bakið á okkar fulltrúum í söngkeppni framhaldsskólanna! :) númerið er 900 2013. Símakosning gildir 50% á móti dómurum í að ákveða sigurvegara og því skiptir hvert atkvæði máli!
Martha og Bergur halda uppi facebook aðdáendasíðu og er keppni milli skóla um hver er með virkustu síðuna þannig ekki skemmir það fyrir ef þið skellið einhverju skemmtilegu á vegginn þeirra, þarf ekki að vera meira en stuðningskveðjur ;)
Hér kemur linkur á tvö stuðningsmyndbönd þar sem nemendur skólans sýndu Mörthu stuðning sinn :D
http://www.facebook.com/home.php#!/video/video.php?v=1291553761319&ref=mf
http://www.facebook.com/home.php#!/video/video.php?v=380319599436&ref=mf
Þið þurfið ekkert að vera með samviskubit yfir því að vera ekki á Akureyri að styðja við þessar elskur, við gerum bara upp fyrir það með að kjósa þau oft og örugglega í símakosningunni! :)